Nýjast á Local Suðurnes

Thorsil fær starfsleyfi – Komið til móts við ábendingar almennings

Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Thorsil ehf. að afloknu opinberu auglýsingaferli, en þann 27. október 2016 kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð að fella úr gildi ákvörðun Umhverfisstofnunar frá 11. september 2015 um að veita Thorsil ehf. starfsleyfi fyrir rekstri kísilverksmiðju á iðnaðarsvæðinu í Helguvík. Vegna þessa tók Umhverfisstofnun afgreiðslu málsins fyrir á ný.

Að loknum umsagnarfresti höfðu borist athugasemdir frá 30 einstaklingum, tvö minnisblöð frá rekstraraðila og eitt áframsent erindi frá Samgöngustofu. Nokkrir umsagnaraðilar vöktu í athugasemdum sínum athygli á undirskriftarlista þar sem farið var fram á að Umhverfisstofnun gefi ekki út starfsleyfi fyrir „kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík að svo komnu máli“ eins og það er orðað í texta þeirra sem óskuðu þess að undirskriftalistinn yrði hafður til hliðsjónar við ákvörðun. Tæplega 3500 einstaklingar skrifuðu nöfn sín á undirskriftalistann.

Nokkur ákvæði leyfisins hafa verið endurskoðuð og þarf fyrirtækið að uppfylla ný ákvæði til að sporna gegn lyktarmengun.

Umhverfisstofnun fór yfir allar athugasemdir sem bárust og breytti eins og áður segir nokkrum ákvæðum fyrra starfsleyfis til að koma á móts við ábendingar almennings. Helst ber að nefna ný ákvæði um lykt í greinum 3.19 og 3.20 vegna reynslu sem skapast hefur af hinni verksmiðjunni. Ákvæði um lykt voru ekki í starfsleyfinu sem fellt var úr gildi, enda var engin umræða um lykt frá starfseminni í mati á umhverfisáhrifum eða í umsóknargögnum. Var fyrirfram ekki talin hætta á slíkum vandamálum.

Starfsleyfið gildir  til 11. september 2031.