sudurnes.net
Þorbjörn semur um smíði á ísfisktogara - Local Sudurnes
Þorbjörn hf. í Grindavík hefur gert samning við Skipasmíðastöðina Armon í Gijón á Spáni um smíði á 58 metra löngum og 13,6 metra breiðum ísfisktogara. Ráðgert er að smíðinni ljúki á fyrri hluta ársins 2024. Þetta er fyrsta nýsmíðin sem Þorbjörn hf. ræðst í síðan 1967, en á undanförnum 50 árum hafa fjölmörg fiskiskip komið við sögu félagsins ýmist við sameiningar við önnur útgerðarfyrirtæki eða við bein kaup. Fyrirtækið hefur staðið fyrir meiriháttar endurnýjun og breytingum á eldri skipum og breytt þeim úr t.d. uppsjávarveiðiskipum yfir í línuskip og ísfisktogurum yfir í frystiskip. Undanfarin ár hefur Þorbjörn hf. tekið úr rekstri þrjú línuskip og tvo frystitogara en í staðinn hefur fyrirtækið keypt frystitogara frá Grænlandi og ísfisktogara frá Vestmannaeyjum. Nú heldur Þorbjörn hf. áfram endurnýjun skipaflota fyrirtækisins og væntanlega verða enn nokkrar breytingar á núverandi útgerð þó að það hafi ekki enn verið ákveðið. Skipið er hannað af Sævari Birgissyni skipatæknifræðingi hjá Verkfræðistofunni Skipasýn ehf. í nánu samstarfi við starfsmenn Þorbjarnar hf og liðsinnti hann starfsmönnum Þorbjarnar hf við samningsgerðina á Spáni. Við hönnun skipsins hefur verið lögð rík áhersla á að draga úr orkunotkun og þar með að umhverfisáhrif þess verði sem minnst. Aðalvél skipsins sem verður um 2400 [...]