Nýjast á Local Suðurnes

Þingmönnum Suðurkjördæmis sérstaklega boðið á fund um tvöföldun Reykjanesbrautar

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Íbúafundur um tvöföldun Reykjanesbrautar verður haldinn í Stapa fimmtudaginn 23. mars. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er áætlað að honum ljúki um klukkan 22.

Bæjaryfirvöld og íbúar Reykjanesbæjar telja brýnt að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar sem allra fyrst. Umferðarþunginn er gríðarlegur með tilheyrandi slysahættu sem bæjarbúar og aðrir notendur Reykjanesbrautar hafa miklar áhyggjur af. Tilgangur fundarins er að varpa ljósi á stöðuna en einnig gefa íbúum tækifæri á að koma með spurningar og tjá sig. Segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ, sem stendur fyrir fundinum.

Meðal þeirra sem halda erindi eru Jón Gunnarsson samgönguráðherra, fulltrúi frá Stopp-hópnum, sem berst fyrir auknu umferðaröryggi á Reykjanesbraut og formaður FÍB, sem ræðir öryggi á vegum landsins, en félagið gerir nú úttekt á þeim. Úttekt á Reykjanesbraut er lokið.

Öllum þingmönnum Suðurkjördæmis og sveitastjórnarmönnum á Suðurnesjum er boðið sérstaklega á fundinn.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Kl. 20:00: Ávarp frá fulltrúa bæjaryfirvalda og setning fundar. Guðbrandur Einarsson forseti bæjarstjórnar.
Kl. 20:10: Fundarstjóri tekur við fundarstjórn. Ólafur Helgi Kjartansson.
Kl. 20:15: Erindi frá Stopp hópnum (Stopp hingað og ekki lengra!), hópi sem berst fyrir auknu umferðaröryggi á Reykjanesbraut. Ísak Ernir Kristinsson.
Kl. 20:30: Yfirlit yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á Reykjanesbraut ofan Reykjanesbæjar sem miða að auknu umferðaröryggi; hringtorg og breytt lega vega. Guðlaugur Helgi Siurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs.
Kl. 20:40: Öryggi á vegum, úttekt FÍB, félags íslenskra bifreiðaeigenda. Steinþór Jónsson formaður.
Kl. 20:45: Ávarp samgönguráðherra, Jóns Gunnarssonar.
Kl. 21:00: Framsögumenn setjast í pallborð og taka þátt í umræðum og svara fyrirspurnum úr sal.
Kl. 22:00: Dagskrárlok