sudurnes.net
Þetta þarf að hafa í huga rofni þjónusta veitufyrirtækja vegna náttúruhamfara - Local Sudurnes
HS Veitur hafa birt ábendingar vegna mögulegs langtíma þjónusturofs veitukerfa vegna náttúruhamfara á heimasíðu sinni. Þar kemur meðal annars fram að mikilvægt sé að búnaður í heild sinni noti ekki meira en 2.500 W (2,5 kW.). Hér fyrir neðan má sjá ábendingar varðandi orkusparnað, en mun ítarlegri upplýsingar má finna á heimasíðu fyrirtækisins. Þessar ábendingar miðast við að spara orku ef til þess kemur að hitaveita verði ekki í boði og nýta þurfi rafmagn til húshitunar eins og lýst er hér að framan. Hafa ber í huga að við þessar aðstæður er ólíklegt að hægt sé að halda fullum hita á híbýlum. Þessar ábendingar taka aðallega til raforkunotkunar og sömuleiðis þess að lágmarka tap á varma:​ Mikilvægt er að forgangsraða raforkunotkun og taka út alla óþarfa notkun og taka út notkun sem kerfið mun ekki ráða við eins og að framan er lýst. Helstu dæmin eru eftirfarandi: Rafhitaðir heitir pottarSaunaklefar, gufuböð o.þ.h.Heimahleðslur rafbílaAllir hitagjafar sem eru utanhús, s.s. hitamottur í gangstétt eða í plönum og innrauðir hitagjafar til notkunar utanhúss.Einnig er mælt með að lágmarka notkun annarra raftækja og nota orkuna vel, sem dæmi:Fyrir eldun skiptir ekki höfuðmáli hvort eldavélahellan eða hraðsuðuketill er notaður en það þarf alltaf að gæta [...]