sudurnes.net
Þetta eru bestu þynnkubitarnir á Suðurnesjum - "Það verður að vera nógu andskoti djúsí!" - Local Sudurnes
Dagurinn eftir gott djamm getur verið frekar erfiður fyrir suma og góður þynnkubani er gulls í gildi. Við á Localnum erum alltaf klárir í að hjálpa fólki og leituðum því til fésbókarvina okkar eftir góðum ráðum í þessum efnum. Flestir voru sammála um að hollusta skipti akkúrat engu máli þegar kæmi að fyrstu máltíðini eftir góða ferð á pöbbann, eða eins og enn góður vinur okkar orðaði það – “Það verður bara að vera nógu andskoti djúsí!” Besti þynnkubitinn: Pulsuvagninn hjá Villa og Ingu fékk lang flest atkvæðin í þessari óformelgu könnun, en vel yfir helmingur þeirra sem tóku þátt sögðu ferð á “Villaborgara” algjörlega vera málið eftir að hafa drukkið of marga kalda. “Eftir gott kvöld úti á lífinu verður maturinn bara að vera nógu andskoti djúsí! Og Villaborgari er bara algjörlega out of this World” Númer 2: Olsen Olsen er að margra mati flottur í þynnkunni – “Beikonbátur á Olsen Olsen reddar alltaf heilsunni daginn eftir. Lífsnauðsynlegt.” Þriðji besti bitinn: Nokkur fjöldi virðist leggja leið sína á Ungó við Hafnargötu eftir að hafa hellt í sig áfengi í töluverðu magni daginn áður, en á meðal þess sem sagt var um staðinn var að það væri flott að “…hjóla í [...]