Nýjast á Local Suðurnes

Teknir með kannabis í krukku

Tvö mál komu á borð lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum þár sem um var að ræða vörslur á  fíkniefnum. Í öðru tilvikinu játuðu tveir einstaklingar eign sína á kannabisefnum í krukku á stofuborði í híbýlum þeirra. Í hinu tilvikinu höfðu lögreglumenn tal af manni sem sat í bifreið sinni. Í aftursæti hennar fundust meint kannabisefni og hvítt fíkniefni í mittistösku. Maðurinn var handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.