Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn með piparúða og stolið greiðslukort

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum tók úr umferð um helgina viðurkenndi neyslu fíkniefna. Í bifreið hans fundust meint fíkniefni svo og á heimili hans, þar sem leit fór fram að fenginni heimild. Hann játaði að eiga efnin.

Þá framvísaði annar karlmaður fíkniefnum sem hann geymdi í bílskúr þegar lögregla hafði tal af honum vegna óskylds máls. Auk þessa var farþegi í bifreið, sem lögregla stöðvaði vegna gruns um vímuefnaakstur, með piparúða og greiðslukort sem hann átti ekki. Sýnatökur bentu til þess að ökumaður bifreiðarinnar væri undir áhrifum fíkniefna.