Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn með kannabissælgæti

Nokkur fíkniefnamál hafa komið á borð lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum þar á meðal mál þar sem maður var tekinn í tolli með kannabissælgæti.

Í einu málanna barst mikil kannabislykt frá íbúð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum og við leit, að fenginni heimild, fundust kannabisefni og hvítt efni.

Við öryggisleit á öðrum einstaklingi, sem handtekinn var, fannst hvítt meint fíkniefni í poka.

Þá var lögreglu gert viðvart um erlendan ferðamann sem stöðvaður hafði verið í tolli með kannabissælgæti. Um var að ræða pakka með sykruðu sælgæti. Manninum var gert að greiða rúmlega 60 þúsund krónur í sekt og var hann frjáls ferða sinna að því loknu.