sudurnes.net
Tekinn með amfetamínbasa í bjórflöskum - Local Sudurnes
Pólskur karlmaður á þrítugsaldri hefur sætt gæsluvarðhaldi að undanförnu vegna tilraunar til að smygla amfetamínbasa til landsins. Tollgæslan í flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvaði ferð mannsins sem var að koma frá Kaupmannahöfn og við leit í farangri hans fundust 830 ml af vökvanum sem falinn var í bjórflöskum. Styrkur basans reyndist vera með þeim hætti að hægt var að framleiða 2,1 kg. af amfetamíni úr honum. Aðilinn var í kjölfarið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald af héraðsdómi Reykjaness. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins sem er á lokastigi. Meira frá SuðurnesjumHvarfakútar hverfa undan bílum í Njarðvík – Lögregla óskar eftir upplýsingumÓskilorðsbundið fangelsi fyrir humarþjófnaðÁtt við reiðhjól barna í Reykjanesbæ – “Get bara ekki skilið það hvað það er mikið til af fávitum þarna úti”Ólögráða á of miklum hraðaMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkÖlvaður ógnaði öryggisvörðum og flugáhöfnLögregla lagði hald á kannabisklumpa og hakakrosstöflurStuðningssíða fyrir feðgana Ragnar og Adam komin í loftiðHandtekinn í Leifsstöð með mikið magn af sterumGrindvíkingar semja við framherja frá UCI háskólanum