Tekinn fullur á vinnulyftu og garðsláttuvél – Sprenghlægileg myndbönd!
Internet-undrið Steve Jessup heldur úti vikulegum þáttum á myndbandaveitunni YouTube. Þættirnir, sem njóta mikilla vinsælda og eru leiknir, ganga undir nafninu I know my rights, en þar gerir Steve meðal annars nokkuð raunveruleg myndbönd af samskiptum sínum við lagana verði.
Tvö myndbönd Jessups, þar sem hann lendir í klóm lögreglu eftir að hafa ekið um drukkinn á vinnulyftu og garðsláttuvél hafa vakið hvað mesta athygli og samtals fengið um 13 milljón áhorf á myndbandaveitunni vinsælu.
Myndböndin, sem eru sprenghlægileg, má sjá hér fyrir neðan: