Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn á tæplega 160 km hraða – Hefur aldrei öðlast ökuréttindi

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum kærði fyrir of hraðan akstur um helgina hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Bifreið hans mældist á 157 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Var þetta í annað skiptið sem hann var stöðvaður við akstur án ökuréttinda.

Allnokkrir ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Þá hafði lögregla afskipti af ökumönnum sem höfðu gerst brotlegir í umferðinni, m.a. með því að virða ekki stöðvunarskyldu, tala í farsíma án handfrjáls búnaðar og aka án þess að hafa öryggisbelti spennt. Loks voru skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum vegna vanræktrar skoðunarskyldu eða trygginga.