sudurnes.net
Tekinn á númeralausum bíl undir áhrifum fíkniefnakokteils - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann á þrítugsaldri í vikunni sem reyndist vera undir áhrifum amfetamíns, metamfetamíns og kannabisefna við aksturinn, auk þess sem hann hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Þá var bifreiðin sem hann ók ótryggð og óskoðuð. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni framvísaði maðurinn amfetamíni sem var í bifreiðinni, auk þess sem lögreglumenn fundu útdraganlega kylfu í hólfi í henni. Skráningarnúmerin höfðu verið fjarlægð af bifreiðinni. Tveir ökumenn til viðbótar, sem lögreglan hafði afskipti af reyndust einnig vera undir áhrifum fíkniefna. Í húsleit á dvalarstað annars þeirra fundust meint fíkniefni í sölupakkningum, að hluta til meint MDMA. Einnig munir sem bentu til dreifingar og sölu fíkniefna og fjármunir sem voru haldlagðir. Meira frá SuðurnesjumHandteknir á salerni fyrir fatlaðaMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkHandtekinn með amfetamín í sokknum og lyf á víð og dreif um heimiliðSkutust á Suðurnesin að skoða íbúð en stálu bíl og voru handteknirReyndi að smygla 106 pakkningum af kókaíni innvortis – Dæmdur í árs fangelsiGrunaður um fíkniefnaakstur með ýmislegt fleira óhreint í pokahorninuFundu meint fíkniefni og umtalsverða fjárhæð í reiðufé við húsleitHandteknir eftir að hafa “læðupokast” við fíkniefnasöluÞórarinn Steinsson skrifar: Hvað með börnin?Lögðu hald á 42 kíló af fíkniefnum – “Gerir rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum [...]