sudurnes.net
Tekin með mikið magn af kókaíni - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur að undanförnu haft til rannsóknar mál sem upp kom þegar ungt íslenskt par kom til landsins með tvær ferðatöskur sem í voru falin á fjórða kíló af kókaíni. Parið var að koma frá Tenerife 10. mars síðastliðinn þegar lögregla handtók það í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir að tollverðir höfðu stöðvað för þess. Í botni beggja taskanna reyndust vera samtals 3,3 kíló rúm af kókaíni. Karlmaðurinn er 23 ára og stúlkan sautján ára. Maðurinn játaði við skýrslutöku hjá lögreglu að hann hefði skipulagt innflutning efnanna, sem hann reyndi að smygla til landsins, án vitundar stúlkunnar. Þeim var báðum gert að sæta gæsluvarðhaldi, honum á Hólmsheiði en stúlkan var vistuð á Stuðlum sökum ungs aldurs. Rannsókn málsins er á lokastigi. Meira frá SuðurnesjumHeimavellir selja níu fjölbýlishús á ÁsbrúGreiða út rúmar fimm milljónir króna vegna hækkunar nefndarlaunaTugmilljónir í reiðufé haldlagðar í aðgerðum lögregluVestnorræna ráðið býður íbúum Suðurnesja á menningarkvöld á föstudaginnSex í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnamálaLögðu hald á 42 kíló af fíkniefnum – “Gerir rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum á götum úti”Vel heppnað kynningarkvöld UMFN – Landsliðsbúningur Loga seldist á hálfa milljónStöðvaður í Leifsstöð með tvö kíló af kókaíni falin í ferðatöskuMánaðarlaun kjörinna fulltrúa í Garði hækka um [...]