Tekin í “græna hliðinu” með kókaín
Tveir karlmenn og ein kona, sem voru stöðvuð af tollvörðum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar nýverið, reyndust vera með á annað hundrað grömm af meintu kókaíni í farangri sínum. Fólkið, sem var að koma frá Spáni, kom inn á grænt tollhlið merkt „Enginn tollskyldur varningur.“
Við hefðbundið eftirlit kom í ljós að í mittistösku sem eitt þeirra bar voru tæplega 100 grömm af meintu kókaíni. Í sameiginlegri ferðatösku þeirra fannst svo meira af efninu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tollstjóra.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.