Nýjast á Local Suðurnes

Takmarkanir á ljósmæðravakt vegna Covid 19

Vegna Covid-19 faraldursins þarf Ljósmæðravaktin að grípa til eftirfarandi ráðstafana:

Hvorki makar né aðstandendur fá að fylgja konum í mæðravernd eða sónarskoðun. Makar og aðstandendur eru beðnir um að koma ekki með inn á deildina.

Einungis maki getur verið viðstaddur fæðingu en ekki aðrir aðstandendur.

Engar heimsóknir eru leyfðar til sængurkvenna.

Ekki er hægt að bjóða upp á nálastungur að svo stöddu.

Ef þarf að sækja vottorð – vinsamlega hringja á undan sér og vottorðum verður komið niður í afgreiðsluna þar sem skjólstæðingar geta nálgast þau.

Það er MJÖG mikilvægt að konur hringi á undan sér og tali við ljósmóður áður en þær koma. Sími 4220542

Ljósmæðravaktin fylgir tilmælum Landlæknis og Almannavarna og biður skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra að sýna þessum tilmælum skilning