sudurnes.net
Taka upp skiptimiðakerfi í strætó - Local Sudurnes
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í gær að tekið verði upp skiptimiðakerfi í almenningssamgöngum í Reykjanesbæ. Eins og sakir standa kostar stök ferð í strætó 300 krónur og verður að greiða þá upphæð þar sem ekki er skiptimynt í bílunum. Þá er tekið við árskortum sem kosta 5.000 krónur. Árni Sigfússon og Böðvar Jónsson, fulltrúar Sjálfstæðisflokks í bæjarráði nýttu tækifærið og ítrekuðu andstöðu sína við gjaldtöku í almenningssamgöngum í Reykjanesbæ og sátu hjá við afgreiðslu málsins, sem var samþykkt með atkvæðum meirihlutans þar sem Kristinn Þór Jakobsson ítrekaði jafnframt andstöðu sína við gjaldtökuna. Meira frá SuðurnesjumGjaldtaka í strætó hefst í janúar – Hér finnurðu lista yfir sölustaði og tímatöfluGjaldtaka í strætó hefst í janúar – Hér er verðskráinOpnað fyrir pantanir á gróðurkössumHækkun á nær öllum liðum gjaldskrár ReykjanesbæjarReykjanesbær leigir íbúum matjurtakassaTæplega 5000 mættu á gosstað í gærBjörgunarsveitin Þorbjörn býður í tertuveislu!1554 fengið mataraðstoð á tveimur mánuðumFalsaðir 5000 króna seðlar í umferðRúmlega 300 íbúðir í nýju Dalshverfi