sudurnes.net
Tæplega 650.000 lögðu leið sína um Keflavíkurflugvöll - Local Sudurnes
Alls lögðu 643.800 farþegar leið sína um Keflavíkurflugvöll í maí, sem er 32,4% fjölgun frá sama tíma í fyrra. Flogið var til 69 áfangastaða og voru þeir vinsælustu Kaupmannahöfn, London, New York, París og Boston. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Isavia, en þar segir að brottfarir Íslendinga hafi verið tæplega 62 þúsund eða 98% af því sem þær mældust árið 2018 þegar mest var. Samkvæmt talningu frá Ferðamálastofu voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 158 þúsund í nýliðnum mánuði. Um er að ræða annan stærsta maímánuð frá því mælingar hófust en brottfarir farþega voru um 96% af því sem þær mældust í maí, metárið 2018. Flestar brottfarir í mars voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna eða um 25,7%, en í öðru sæti voru brottfarir Pólverja, eða 9,3% af heild. Þar á eftir fylgdu Frakkar, Þjóðverjar og Hollendingar. Meira frá SuðurnesjumFlugliðar fluttir á HSS eftir neyðarlendingu vélar British AirwaysTæplega 600 þúsund fóru um KeflavíkurflugvöllDelta mun auka áætlunarflug frá Keflavík til New YorkHættustig í gildi á KeflavíkurflugvelliDavíð Snær jafnaði landsleikjamet Eiðs SmáraFlugfarþegi léstKynbundinn launamunur hjá Grindavíkurbæ skýrist helst af arfleið fortíðarTæplega 750.000 lögðu leið sína um KEF145.891 flugvél fór um íslenska flugstjórnarsvæðið á árinu 2015Miklu magni lyfja stolið úr apóteki – [...]