Nýjast á Local Suðurnes

Tæplega 600 manns mættu í ókeypis heilsufarsmælingu

SÍBS Líf og heilsa er forvarnaverkefni um heilbrigði og lífsstíl þar sem SÍBS, Hjartaheill, Samtök sykursjúkra og Samtök lungnasjúklinga bjóða almenningi ókeypis heilsufarsmælingu í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög.

Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.

Boðið var upp á mælingarnar í öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum í febrúar síðastliðnum og nýttu um 600 einstaklingar sér heilsufarsmælingarnar og tóku þátt í að svara heilsufarskönnuninni Líf og heilsa.