Nýjast á Local Suðurnes

Tæplega 10.000.000 farþegar fara um Keflavíkurflugvöll í ár

Fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hefur verið afar hröð á síðustu árum. Samkvæmt uppfærðri farþegaspá fyrir árið 2018 er útlit fyrir að niðurstaðan í nóvember og desember þýði að farþegar sem fara um flugvöllinn í ár verði 9,8 milljónir sem er ögn minni aukning en í þeirri spá sem kynnt var í nóvember 2017 og í uppfærðri spá frá því í vor. Aukningin verður samkvæmt þessu 5,4% í nóvember og 3% í desember frá fyrra ári. Fyrir árið í heild er aukningin 12,2% og byggist sú spá meðal annars á ákveðinni sætanýtingu og verða þær tölur staðfestar í lok árs.

„Farþegaspá Isavia fyrir árið 2019, sem að öllu jöfnu er kynnt í byrjun desember ár hvert, liggur ekki fyrir í dag og skýrist það meðal annars af breytingum á markaði, meðal annars vegna kaupa Icelandair á Wow Air. Samruninn seinkar því hvenær áreiðanleg gögn fást frá flugfélögunum og teljum við að spá fyrir 2019 verði tilbúin í byrjun næsta árs,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar. „Það sem einna helst skýrir minni aukningu í ár, miðað við fyrri spá, er að þegar spáin er unnin að hausti þá er alltaf minna vitað um hvernig síðasti ársfjórðungur muni þróast. Þá má gera ráð fyrir að gengi krónunnar hafi einhver áhrif en dýrara var að ferðast til Íslands í sumar en árin á undan.“

Fyrir stuttu var tilkynnt um níu milljónasta farþegann sem fór um Keflavíkurflugvöll á árinu. Sú tala tekur til komu-, brottfarar- og skiptifarþega og var í fyrsta sinn sem því takmarki hefur verið náð á Keflavíkurflugvelli.