Nýjast á Local Suðurnes

Sýktum fjölgar en fækkar í sóttkví á Suðurnesjum

Alls eru 47 einstaklingar smitaðir af kórónuveirunni á Suðurnesjum samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is. Þá sæta 436 einstaklingar sóttkví á svæðinu samkvæmt sama vef, en það er fækkun um 14 frá því síðustu tölur voru birtar.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja birtir reglulega fréttir af starfseminni á Facebook og eru Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook.