Svíar taka upp Suðurnesjamódelið í heimilsofbeldismálum
Félags- og dómsmálayfirvöld í Vestur-Gautlandi í Svíþjóð vinna nú að undirbúningi þróunarverkefnis sem byggir á íslenskri fyrirmynd og miðar að bættu verklagi og samvinnu í heimilisofbeldismálum.
Guðríður Bolladóttir, formaður Samstarfsteymis velferðarráðuneytisins vegna heimilisofbeldis, segir við mbl.is afar ánægjulegt að Suðurnesjamódelið svokallaða nái til nágrannalandanna enda leggi ráðuneytið ríka áherslu á þetta verklag.
Local Suðurnes fjallaði ítarlega um verkefnið í ágúst, þar kom meðal annars fram að fjöldi sveitarfélaga á Íslandi hafi sýnt áhuga á að taka verkferlana upp auk þess sem verkefninu hafi verið sýndur mikill áhugi erlendis frá. Þá kom einnig fram í umfjölluninni að í upphafi árs 2014 hafi verkefni embættis Lögreglustjórans á Suðurnesjum og Reykjanesbæjar um heimilisofbeldi „Að halda glugganum opnum“ fengið viðurkenningu vegna nýsköpunar í opinberum rekstri.