Sveiflandi kerra tók bifreið út af Reykjanesbraut
Bifreið með kerru aftan í valt út af Reykjanesbrautinni við Hvassahraun í gær, að því er greint er frá í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Hafði kerran tekið að sveiflast til og tók hún bifreiðina á endanum með sér út af veginum. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala.
Þá varð einnig árekstur á Suðurstrandarvegi í fyrradag, en hann var minni háttar og engin slys á fólki.