Svæðið í kringum gosstöðvarnar ekki lokað – Þetta þarf göngufólk að hafa í huga!
Svæðið í kringum gosstöðvarnar í Geldingadal við Fagradalsfjall er ekki lokað, en það getur hins vegar verið hættulegt. Þetta kom fram á fundi Almannavarna og Veðurstofu í dag.
Almannavarnir hafa sett fram nokkrar ráðleggingar og varúðarorð til þeirra sem hyggjast halda á svæðið í dag sem sjá má hér fyrir neðan.
- Við gosstöðvarnar gæti gas legið í lægðum og þá geta þar líka verið næst gosstöðvunum gastegundir sem ryðja burt súrefni.
- Gosstöðvarnar geta breyst án fyrirvara. Þannig opnaðist ný sprunga á Fimmvörðuhálsi nánast undir fótum fólks sem var á svæðinu. Þótt það séu ekki stórar breytingar getur það sett fólk í hættu.
- Torveld aðkoma. Bent rt á að það þurfi að ganga yfir hraun sem ekki sé þægilegt að fara yfir til að komast að gosstöðvunum. Fólk þarf því að vera vant göngu og vel búið. Ganga fram og til baka frá Suðurstrandarvegi gæti tekið allt að 6-8 klst.
- Veðurspáin í dag er ekki góð. Það er spáð meira hvassviðri og úrkomu þegar líður á daginn. Fólk þarf því aftur að vera vant útivist og vel búið.
- Á svæðinu er næstum ekkert símasamband í almenna símakerfinu. Fólk þarf að hafa þetta í huga ef eitthvað kemur upp. Þó hefur betra sambandi fyrir VHF og tetra verið komið upp á svæðiNú. Rkki hægt að treysta á að kerfin virki fullkomlega.
- Suðurstrandarvegur um Festarfjall er lokaður vegna skemmda á veginum eftir skjálfta upp á 5,4 sem varð beint undir veginum. Þar getur því reynst erfitt að komast að svæðinu.
- Verið er að skoða hvar best væri að koma að svæðinu upp á bílastæði, en fólki er bent á að ekki megi leggja í vegkanti og skilja bíla eftir. Það geti einnig haft áhrif til tafa fyrir viðbragðsaðila og vísindafólk.
- Grundvallarreglan er að nálgast svæðið með vindinn í bakið til að koma í veg fyrir gaseitrun. Mikilvægt er að skoða veðurspá fyrir svæðið áður en lagt er af stað.