sudurnes.net
Sundhöll hefur hvorki listrænt gildi né umhverfisgildi - Vinna úttekt á tæknilegu ástandi - Local Sudurnes
Minjastofnun Íslands hefur óskað eftir því eftir að húsafriðunarnefnd leggi sjálfstætt mat á varðveislugildi Sundhallar Keflavíkur við Framnesveg 9, Reykjanesbæ. Jafnframt er óskað álits nefndarinnar á því hvort rétt sé að leggja til friðlýsingu hússins ef ekki reynist unnt að tryggja varðveislu þess í deiliskipulagi. Nefndin leggur til við Minjastofnun að unnið verði ítarlegt varðveislumat og hluti af því mati verði heildarúttekt á tæknilegu ástandi hússins, framkvæmd af fagmönnum. Jafnframt verði unnin frumkostnaðaráætlun um viðgerð á húsinu. Kostnaður við gerð úttektarinnar verði greiddur úr húsafriðunarsjóði. Nefndin telur rétt að á grundvelli þessarar úttektar verði tekin ákvörðun um hvort húsið verði friðlýst. Greinargerð um varðveislumat er lokið og er lögð fram þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að byggingin hefur í núverandi ástandi ekkert listrænt gildi, takmarkað umhverfisgildi en vegna forsögunnar er lokaniðurstaðan sú að byggingin hefur átt verndargildi. Meira frá SuðurnesjumAkurskóli metinn af ráðuneyti – Áhersla lögð á að styðja kennara í umbótum á eigin starfiViðbragðsáætlun vegna kórónaveirunnar virkjuð á KeflavíkurflugvelliMikilvægt að þjónustuveitendur séu vakandi og bregðist skjótt við breyttum aðstæðumFrestur til að skila inn athugasemdum við matsáætlun kísilmálmsverksmiðju rennur út í dagBæjarráð hefur fulla heimild til að halda aukafundi og greiða fyrir fundarsetuSkora á bankann að falla frá [...]