sudurnes.net
Suðurnesjalið vilja klára Íslandsmótið - Local Sudurnes
Níu félög í Lengjudeildinni, 2. deild og 3. deild karla, þar á meðal Suðurnesjaliðin Njarðvík, Víðir og Þróttur Vogum, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á KSÍ að halda Íslandsmótinu í knattspyrnu áfram til 1. desember. Ekkert hefur verið spilað síðan 7. október og óvíssa er um framhald mótsins vegna kórónuveirufaraldursins. Yfirlýsing liðanna níu í heild sinni: Eftirfarandi félög hvetja KSÍ að halda Íslandsmótum í knattspyrnu áfram til 1. desember n.k. Skoðun okkar er að það á að klára öll mót svo að allir njóti sanngjarnrar lokaniðurstöðu. Hreyfingin mun bera mikinn skaða af því að hlusta eingöngu á raddir félaga sem halda uppi áróðri í fjölmiðlum um bestu niðurstöðu sinna félaga í öllum deildum Íslandsmótsins. Í reglugerð KSÍ um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru (Covid-19) segir í gr. 4.4. Öllum leikjum í Íslandsmótum skal vera lokið eigi síður en 1. desember 2020 og verður einstökum leikjum eða mótum meistaraflokka ekki frestað aftur fyrir þann tíma. Félög sem senda þessa yfirlýsingu eru:ÁlftanesFramHaukarLeiknir FMagniNjarðvíkVíðirVængir JúpítersÞróttur V Meira frá SuðurnesjumMikilvægur sigur hjá Njarðvíkingum40 milljónir króna frá KSÍ til Suðurnesja vegna EMGrindvíkingar nota framlag KSÍ í uppbyggingu íþróttamannvirkjaTveggja leikja bann byggt á myndbandsupptökuVilja bikarinn og peninginn til NjarðvíkurKeflavík úr [...]