Nýjast á Local Suðurnes

Subway á Fitjum orðinn einn sá stærsti á landinu – Mikill fjöldi ferðamanna sækir staðinn

Mynd: Subway

Su­bway á Fitj­um í Reykja­nes­bæ hef­ur verið opnaður að nýju eft­ir mikl­ar og gagn­ger­ar end­ur­bæt­ur og stækk­un. Veit­ingastaður­inn var rúm­lega tvö­faldaður að stærð og er nú 180 fer­metr­ar og rúm­ar 65 manns í sæti.

Er Su­bway á Fitj­um nú orðinn einn af stærstu Su­bway stöðum lands­ins. Í til­kynn­ingu frá fyrirtækinu segir að staður­inn hafi verið stækkaður til að mæta auk­inni aðsókn sem fylgt hef­ur straumi ferðamanna til lands­ins. Staður­inn verður sem fyrr op­inn all­an sól­ar­hring­inn.