Nýjast á Local Suðurnes

Styrktu Krabbameinsfélagið veglega eftir slaufusölu

Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður upp á endurvinnsluáfanga í textíl og er liður í þeim áfanga að vinna verkefni úr endurunnu hráefni og gefa til góðgerðarmála.

Nemendur saumuðu og seldu herraslaufur og ágóðinn 200.000 kr., rann til Krabbameinsfèlags Suðurnesja.

Nemendur mega svo sannarlega vera stoltir af verkefninu en þau stóðu sig afar vel, bæði við vinnu og sölumennsku.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Sigríði Ingibjörnsdóttur starfsmann Krabbameinsfélags Suðurnesja veita styrknum móttöku.