sudurnes.net
Stúlkurnar beittar hrottafengnu ofbeldi - Meintur gerandi í gæsluvarðhaldi - Local Sudurnes
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir 19 ára pilti sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur stúlkum, á Suðurnesjum og í Grafarvogi. Lýsingar þeirra á brotunum bera þess merki að þær hafi verið beittar grófu og hrottafengnu ofbeldi. Það er RÚV.is sem greinir frá þessu, þar kemur fram að við skýrslutöku hjá lögreglunni á Suðurnesjum hafi stúlkan sagt að maðurinn hefði nauðgað henni tvisvar á heimili hans – Auk þess sem hann hafi sagt að hann gæti látið hana hverfa ef hún hlýddi ekki. Þrátt fyrir þetta sá Lögreglan á Suðurnesjum ekki ástæðu til að óska eftir gæsluvarðhaldi yfir manninum. Maðurinn verður í varðhaldi til 19. ágúst, en einungis var óskað eftir gæsluvarðhaldi fyrir síðara málið, sem upp kom í Grafarvogi. Þá kemur fram í frétt Rúv að þar sem maðurinn hefur samþykkt að undirgangast geðrannsókn þótti dóminum rétt að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma. Meira frá SuðurnesjumByrjað á framkvæmdum við heitavatnslögnSonurinn kominn í skammtímavistun – Stofnaði hóp á Facebook fyrir fólk í sömu stöðuLögregla svipast um eftir Eyju DísLögregla lýsir eftir WiktoriuHelgi Seljan um málaferli gegn Atla Má: “Skömm að þessu helvíti.”Fyrrverandi sviðsstjóri hjá Reykjanesbæ dæmdur fyrir kynferðisbrot – Annað mál í rannsóknFella niður fæðisgjald fyrir þriðja barn í grunnskólumRútufyrirtæki segir upp samningi um akstur [...]