sudurnes.net
Stuðningssíða fyrir feðgana Ragnar og Adam komin í loftið - Local Sudurnes
Við greindum frá því í fyrr í dag að Ragnar Vilhelmsen Hafsteinsson ætti fyrir höndum langa og stranga deilu við barnsmóður sína eftir að sonur hans, sem hann hefur fulla forsjá yfir, skilaði sér ekki til baka eftir dvöl hjá móður sinni. Ragnar hefur fulla forsjá yfir syni sínum eftir að hafa unnið mál þess efnis fyrir dómstólum. Hann lítur ekki á málið sem hluta af forsjármáli heldur sem barnsrán. Ragnar hefur nú sett Facebook-síðuna “Bring Adam back home” á laggirnar en á síðunni má finna upplýsingar um hvernig styrkja megi Ragnar í baráttunni sem framundan er, en Ragnar gerir ráð fyrir að málið muni taka tíma auk þess að vera mjög kostnaðarsamt, en barnsmóðirin heldur til í Slóvakíu með drenginn en Ragnar býr í Noregi. Hentar hagsmunum drengsins best að vera hjá föður sínum Ragnar og barnsmóðir hans slitu samvistum árið 2010 og þar sem ekki náðist samkomulag um umgegni fór málið fyrir dóm. Báðir aðilar kröfðust fullrar forsjár yfir drengnum en að loknu sálfræðimati og mati á fjárhag deiluaðila var það niðurstaða dómsins að Ragnar færi með fulla forsjá drengsins enda myndi það henta hagsmunum barnsins best. Ragnar segir dóminn vera skýran og að það henti syninum betur að vera hjá sér. “Einnig [...]