Strangar reglur um kynlíf gesta í Bláa lóninu
Bláa lónið hafur strangar reglur um kynlíf gesta og grannt er fylgst með því sem fram fer í lóninu. Fjórir gæslumenn eru á vakt hverju sinni og manni þeir öll horn lónsins og fylgjast vandlega með, þetta kemur fram í viðtali mbl.is við Atla Sigurð Kristjánsson, verkefnastjóra á markaðsdeild Bláa lónsins.
„Það er hluti af þeirra vinnu að fylgjast með aðförum og upplifun gesta. Við erum að vernda upplifun gestanna og á öllu svona er tekið hart, þar sem þetta er í raun ekki í boði.“ Hann segir þetta sérstaklega hafa verið vandamál í gamla lóninu, en sé “hverfandi vandamál í dag”