Nýjast á Local Suðurnes

Strandarhlaup Þróttar þann 13. ágúst – Glæsileg verðlaun í boði

Ungmennafélagið Þróttur stendur fyrir árlegu Strandarhlaupi þann 13. ágúst næstkomandi. Í boði verða 5 og 10 km. leiðir með tímatöku.

Glæsilegir vinningar frá Dansport/Hummel verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í kvenna- og karlaflokki í báðum vegalengdum. Glæsileg útdráttarverðlaun, meðal annars 50.000 kr. gjafabréf frá Icelandair.

Hlaupaleiðir
5 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina. Hlaupið er út Stapaveg þar sem komið er inn á malarveg. Eftir 3 km er stuttur utanvegakafli uns komið er inn á göngustígakerfi þar sem hlaupið er með sjónum, umhverfis Vogatjörn og að Íþróttamiðstöðinni.

10 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina og liggur um Vatnsleysustrandarveg. 3 km eru á gömlum malarslóða, síðan á Vatnsleysustrandarvegi í fallegu sveitaumhverfi. Að lokum er hlaupinn einfaldur hringur á göngustígum bæjarins að Íþróttamiðstöðinni.

Skráning fer fram hér á hlaup.is. Athugið að skráningargjald hækkar á hlaupadegi og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig. Forskráning er til kl 22:00 föstudaginn 12. ágúst 2016. Skráning á keppnisdegi verður í íþróttahúsinu frá kl. 9 til 9:40 fyrir hlaup.

Að hlaupi loknu gefst hlaupurum á að fara í gufu, sund eða nota heitu pottana í boði Sveitarfélagsins Voga.

Sem fyrr segir er það Ungmennafélagið Þróttur stendur fyrir hlaupinu og má nálgast allar upplýsingar hjá Marteini framkvæmdastjóra í síma 865-3722 eða throttur@throttur.net.