sudurnes.net
STORÐ gefur út sína fyrstu plötu - Local Sudurnes
Hljómsveitin STORÐ gefur út sína fyrstu hljómplötu um þessar mundir. Hljómsveitin sem er mestu ættuð af Suðurnesjum hefur unnið að plötunni síðustu tvö ár og hefur fengið til liðs við sig mikið af hæfileikaríku tónlistarfólki til að vinna að verkinu. Platan sem verður aðgengileg á öllum helstu streymisveitum þann 25. Oktober næstkomandi ber nafnið Black Waters og inniheldur 10 lög, sem öll eru samin af Bjarna Geir Bjarnasyni gítarista og Siggu Mayu söngvara. Auk þeirra eru meðlimir hljómsveitarinnar Sturla Ólafsson slagverksleikari og Logi Már Einarsson bassaleikari. Hljómsveitin skilgreinir sig sem fjölstefnuhljómsveit og á komandi plötu má glitta í rokk, blús, prog og sækadeliu auk annars sem til hefur fallið, þar sem stungið er á kýli og horfst óhikað í augu við sjálfið, ástina og hin ýmsu sálar- og þjóðfélagsmein. Black Waters var að mestu hljóðunnin í Stúdio Gott hljóð í Borgarnesi af Sigurþóri “Sissa” Kristjánssyni Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðByggja 6000 fermetra hundagerðiPlata á leiðinni frá STORÐ sem býður upp á ókeypis tónleikaBlöðrur og bombur á Pallaballi á LjósanóttMegatalent frá Reykjanesbæ í Jólastjörnunni 2016 – Myndband!Fögnuðu flottum breytingum á Eldey Hotel – Myndir!Fjögurra bjóra hlaup á bæjarhátíðLjósanótt: Minningarstund III fimmtudaginn 3. september kl 17.00Gullaldarlið Þróttar [...]