sudurnes.net
Stökk í sjóinn eftir háskaakstur - Ók á 100 km hraða í gegnum íbúðagötu - Local Sudurnes
Ökumaður, sem lögreglumenn á Suðurnesjum hugðust hafa tal af í vikunni, gaf allt í botn og sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Hann ók á ofsahraða á undan lögreglubílnum alllangan veg og endaði för sína á hafnarsvæðinu í Vogum þar sem hann stökk í sjóinn. Hann játaði ölvunarakstur. Lögregla hugðist, við hefðbundið eftirlit á Reykjanesbraut, benda manninum á að hann æki án þess að hafa ökuljósin kveikt þegar hann gaf í. Honum var veitt eftirför og ók hann á köflum margfalt yfir leyfðum hámarkshraða, til dæmis á rúmlega 100 km hraða á Vogavegi þar sem hámarkshraði er 50 km og á 100 km hraða á Hafnargötu í Vogum þar sem hámarkshraði er 30 km. Háskaakstrinum lauk á hafnarsvæðinu þaðan sem ökumaðurinn lagðist til sunds. Lögregla skipaði honum að koma í land sem hann gerði að lokum. Hann og farþegi sem var í bílnum með honum voru handteknir og færðir á lögreglustöð. Meira frá SuðurnesjumStöðvuðu dópaðann rútubílstjóra – Rútan fullsetin af farþegumGikkskjálftar við ReykjanestáFluttur alvarlega veikur á HSS eftir neyslu amfetamínsSvaf ölvunarsvefni undir stýri við lögreglustöðina – Fékk að sofa lengur í fangaklefaMeintir sterar og meint kannabisefni gert upptækt eftir húsleitSandgerðisbær gefur frí frá hádegi í dagUndirrituðu viljayfirlýsingu um uppbyggingu á skipaþjónustuklasaReykjaneshöfn fær [...]