Stofnfundur húsnæðissamvinnufélags á fimmtudag – Meira húsnæðisöryggi en þekkst hefur
Fimmtudaginn 14. september næstkomandi verður haldinn stofnfundur húsnæðissamvinnufélagsins, Íbúðafélag Suðurnesja hsf. sem er óhagnaðardrifið leigufélag (non profit), þar sem félagsmenn geta leigt húsnæði á lægra verði en gengur og gerist á almennum markaði.
Íbúðir félagsins verða aðeins í útleigu og ekki verður hægt að selja þær út úr félaginu, segir í tilkynningu. Um er að ræða langtíma leiguréttaríbúðir sem veita meira húsnæðisöryggi en áður hefur þekkst hér á landi, en svipuð félög eru með um það bil 20% af húsnæðismarkaði á hinum Norðurlöndunum, segir í tilkynningunni.
Fundurinn verður haldinn í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ og hefst klukkan 20.00.
Dagskrá fundarins er;
1. Fundur settur og lagt til við fundinn skipan fundarstjóra.
2. Kynning á húsnæðissamvinnufélagi.
3. Tillögur að Lögum félagsins lagðar fram og óskað eftir samþykkt fundarins.
4. Tillaga undirbúningshóps að stjórn og framkvæmdastjóra félagsins og óskað eftir samþykkt fundarins.
5. Önnur mál