Stöðvuðu umfangsmikla kannabisræktun - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í umdæminu síðastliðinn föstudag. Um var að ræða kannabisgræðlinga í tjaldi auk stórra planta sem fundust í þremur herbergjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir að samtals hafi verið um að ræða vel á þriðja hundrað kannabisplöntur, auk poka með kannabisefnum sem fundust við húsleitina. Þá var hald lagt á tugi þúsunda króna, plönturnar og ræktunarbúnað. Húsráðandi var handtekinn og játaði að eiga ræktunina og hafa staðið einn að henni. Meira frá SuðurnesjumUmfangsmikil kannabisræktun stöðvuð – Rúmlega 6 kíló af kannabisefnum haldlögð17 ára ökumaður ók hraðast allra – Sviptur og fær 130.000 króna sektÓvenju mikið um hnupl úr verslunum – Stolið fyrir tugi þúsunda á innan við vikuTekinn í tollinum með 21.237 verkjatöflur – 17 létust á síðasta ári vegna misnotkunar verkjalyfjaHaldlögðu talsvert magn af kannabisefnum og reiðuféTekinn með vopn og fíkniefniSamið um rekstur tjaldsvæðis til tíu áraEigendur Bláa lónsins þátttakendur í ylstrandarverkefni við UrriðavatnÁhrifavaldurinn Gæi tekur þátt í 10 ára áskorun – Myndir!Brenndist illa á fæti eftir fall í sjóðandi leirpytt