sudurnes.net
Stöðvuðu stórfellda kannabisræktun - Lögðu hald á fjármuni og skotvopn - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið stórfellda kannabisframleiðslu sem átti sér stað í heimahúsi í Sandgerði. Lögreglumenn í hefðbundnu eftirliti urðu varir við megna kannabislykt og þegar betur var að gáð stóð yfir umfangsmikil kannabisræktun í húsinu. Lagði lögregla hald á vel á annað hundrað kannabisplöntur, græðlinga, fjármuni sem og skotvopn. Tveir menn hafa verið handteknir og yfirheyrðir vegna málsins sem er í rannsókn. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaus til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Meira frá SuðurnesjumOpna öflugustu hraðhleðslustöð landsins í ReykjanesbæSkutlari stöðvaður tvívegisGripinn dansandi undir stýri og rásandi út um allan vegVopnaleit tók um fimm klukkustundir – Isavia þakkar þjónustuaðilum á flugvellinumSamherji í ólgusjó með öfluga starfsemi á SuðurnesjumRagnheiður Sara endaði í þriðja sæti á heimsleikunumLífeyrissjóðir hætta við þátttöku á íbúafundi um stóriðjuFærðu listaverk út úr flugstöðinni vegna fjölgunar farþegaMikið af fiski drepist í kerjum MatorkuYfir 30.000 gestir á Ljósanótt – Kanna hvernig til tókst