Nýjast á Local Suðurnes

Stöðvaður með allt í ólagi

Það var bókstaflega ekkert í lagi hjá ökumanni sem lögreglumenn á Suðurnesjum höfðu afskipti af í gærkvöld. Hann var að aka áleiðis að Flugstöð Leifs Eiríkssonar og í bifreið hans voru of margir farþegar. Þá kom í ljós að ökuréttindi hans voru útrunnin. Til viðbótar þessu vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem sýnatökur gáfu til kynna fíkniefnaneyslu.

Annar ökumaður sem tekinn var úr umferð í nótt var grunaður um ölvun við akstur. Hann ók jafnframt sviptur ökuréttindum.