sudurnes.net
Stöðvaður á 217 km/h og fjórir handteknir - Local Sudurnes
Ökumaður á hraðferð var stöðvaður af næturvakt lögreglunnar á Suðurnesjum, en sá ók á 217 kílómetra hraða á klukkustund og á væntanlega von á hárri sekt sú sviptingu réttinda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu sem greinir frá störfum næturinnar. Tugir ökumann voru stoppaðir á næturvaktinni hjá okkur og voru langflestir með allt sitt á hreinu, framvísuðu gildum ökuréttindum og voru allsgáðir. 4 aðilar voru þó handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og nokkrir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók reyndist vera á 217 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90km/klst. Sá var færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum og má hann eiga von á ákæru fyrir þetta athæfi sitt.Við viljum biðja ökumenn um að fara varlega og taka tillit til annarra í umferðinni. Það að aka undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða langt umfram hámarkshraða er gríðarlega hættulegur “leikur” fyrir alla sem eru í umferðinni, ekki bara þann sem er að brjóta reglurnar heldur alla vegfarendur.Eigið góða helgi og farið varlega. Meira frá SuðurnesjumUmhverfisstofnun: Mælingar á mengunarefnum aldrei farið yfir skilgreind viðmiðunarmörkAfhentu Barnaspítala Hringsins ágóða af LífsstílshlaupiFöstudagsÁrni: Hætti frekar að drekka en að fara í meðferðHvatagreiðslur til yngri iðkendaGrunnskóli Grindavíkur verðlaunaður [...]