sudurnes.net
Stjórnin vildi fá skrifleg svör frá framkvæmdastjóra Kadeco - Sýslar með eignir á Ásbrú - Local Sudurnes
Stjórn Þróunarfélagsfélags­ Keflavíkurflugvallar, Kadeco, óskaði eftir því að Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri félagsins geri stjórn­inni skrif­lega grein fyrir við­skiptum sínum á svæð­inu. Þetta segir Sig­urður Kári Krist­jáns­son, frá­far­andi stjórn­ar­for­maður Kadeco, í sam­tali við Kjarn­ann. Kjart­an rekur fyrirtækið Airport City, í samstarfi við athafnamanninn Sverri Sverrisson, en þeir félagar hófu við­skipta­sam­band í kjölfarið á umdeildum viðskiptum Sverris við Kadeco. Air­port City stundar fast­eigna­við­skipti á Ásbrú, en fyrirtækið hefur þó ekki keypt fasteignir af Kadeco, að sögn Sigurðar Kára. “Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér í tilefni fyrirspurna þinna þá liggur fyrir að Kadeco hefur aldrei átt í fasteignaviðskiptum við félagið Airport City ehf. og ekki selt því félagi neinar fasteignir.“ Sagði Sigurður Kári við Suðurnes.net, þegar miðillinn fjallaði um viðskipti félaganna í lok maí. „Aðkoma félagsins að þeim kaupsamningum [innsk. Blm.: við önnur fyrirtæki en Kadeco] er því engin, enda eru þeir gerðir á milli tveggja lögaðila sem eru Kadeco óviðkomandi.“ Sagði Sigurður Kári. Sigurður Kári hefur ekki svarað fyrirspurnum Suðurnes.net síðan skipt var um stjórn Kadeco á aðalfundi félagsins á þriðjudag. Meira frá SuðurnesjumFélag í jafnri eigu athafnamanns og framkvæmdastjóra Kadeco sýslar með eignir á ÁsbrúSverrir vildi komast yfir fleiri Kadeco-eignirFjölmennt á fundi Isavia um deiliskipulag á KeflavíkurflugvelliFá niðurstöður mælinga vegna [...]