sudurnes.net
Stefnt að uppbyggingu miðlægs íþróttasvæðis - Framkvæmdir hefjist á næsta ári - Local Sudurnes
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar leggur áherslu á að framkvæmdir við ný íþróttamannvirki fyrir allar deildir verði settar á fjárhagsáætlun á næstu árum. Mannvirkin yrðu staðsett við Afreksbraut, aftan við Reykjaneshöll. Samkvæmt tillögu sem ráðgjafar Capacent unnu fyrir Reykjanesbæ myndu Körfuknattleiksdeildir Keflavíkur og Njarðvíkur notast við sama húsnæði og knattspyrnudeildirnar við sama völlinn á miðlægu íþróttasvæði. Þá er stefnt á byggingu fimleikahúss auk húsnæðis fyrir allar bardagaíþróttir, skotdeild, golfklúbb og lyftingadeild. ÍT ráð leggur áherslu á að uppbygging á svæðinu hefjist á næsta ári með byggingu á fullbúnum gervigraskeppnisvelli fyrir Keflavík og Njarðvík með stúku sem rúmar um 2.000 manns. Áætlunin sem ÍT ráð leggur til að farið verði eftir við uppbygginguna: 2019 • Unnið með niðurstöður Capacent og stillt upp þörfum íþróttafélaganna varðandi Afreksbraut • Teiknað upp framtíðarsvæði við Afreksbraut í samstarfi við USK og ÍT ráð • Áhersla lögð á að tengja hjóla- og göngustíga úr nærliggjandi hverfum 2020 • Hafist handa við byggingu á fullbúnum gervigraskeppnisvelli fyrir Keflavík og Njarðvík með stúku og búningaaðstöðu vestan Reykjaneshallar • Ný áhaldageymsla við Reykjaneshöll 2021 • Hafist handa við hönnun á fjölnota íþróttahúsi við Afreksbraut sem staðsett verður á svæðinu milli æfingavalla Keflavíkur og Njarðvíkur í knattspyrnu. Í íþróttahúsinu verður keppnisvöllur fyrir körfuknattleiksdeildir Reykjanesbæjar, framtíðaraðstaða fyrir fimleikadeild og [...]