Stefnt á að bjóða upp á hollan kvöldmat frá leikskólum Hjallastefnunnar
Leikskólar Hjallastefnunnar á höfuðborgarsvæðinu munu frá og með 15. janúar bjóða fjölskyldum barna á leikskólunum að taka með sér tilbúnar kvöldmáltíðir þegar börn eru sótt á leikskólann.
Hjallastefnan rekur fjóra leikskóla á Reykjanesi, þrjá í Reykjanesbæ og einn í Sandgerði og sagði Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir hjá Hjallastefnunni að stefnt sé að því að bjóða upp á þessa þjónustu á Suðurnesjum þegar umfangið á höfuborgarsvæðinu verður ljóst. Verkefnið er unnið í samstarfi við veitingastaðinn Gló, sem sérhæfir sig í íslensku hollustufæði.
“Kvöldmatarþjónustan verður fyrst um sinn aðeins aðgengileg fyrir leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Um leið og við höfum fengið tilfinningu fyrir umfangi og vinnu í samstarfi við Gló þá færum við út kvíarnar á Suðurnesin.” Sagði Svanhildur Gréta.
Hjallastefnan hefur starfað eftir eigin matarstöðlum í mörg ár að sögn Margrétar Pálu Ólafsdóttur er mikil áhersla lögð á hollt fæði í skólum stefnunnar. Í boði verða ýmist grænmetis- eða kjúklingaréttir og verða máltíðirnar svo gott sem tilbúnar þegar þær eru sóttar en miðað er að aðeins þurfi nokkur einföld handtök til að undirbúa máltíðirnar.