sudurnes.net
Stefnir í allt að 18 gráður á Suðurnesjum í dag - Local Sudurnes
Búist við blíðskaparveðri víða um land í dag en hlýjast verður þó sunnanlands og búast má við 16-18 stiga hita á Suðurnesjum, samkvæmt vef Veðurstofu Íslands. Fyrir þá sem eru á ferðinni er þó rétt að benda á viðvörun frá veðurfræðingum sem birt er á vef Veðurstofunnar, en þar segir: Í dag má búast við snörpum vindhviðum (25-30 m/s) syðst á landinu og við Öræfajökul og því varasamt fyrir farartæki sem taka á sig vind. Veðurhorfur á landinu: Austlæg átt, 5-10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum, en 13-18 með suðaustanströndinni. Rigning suðaustanlands undir kvöld en um allt sunnan- og austanvert landið í nótt. Austan 5-13 á morgun. Rigning með köflum suðaustantil á landinu en víða bjartviðri norðan- og vestanlands. Úrkomulítið norðvestan til. Hiti allt að 20 stigum á norðan- og vestanverðu landinu en annars 10 til 15 stig. Meira frá SuðurnesjumVeðurstofan varar við mikilli rigninguMögulega hált á vegum um helginaTrampólín- og tunnufjúkveður í kortunumFínt veður næstu dagaSpá allt að tólf stiga frosti á SuðurnesjumViðrar vel til hátíðarhalda á þjóðhátíðardaginnVegagerðin varar við aðstæðum á ReykjanesbrautVeðurstofan varar við stormi – Talsverð úrkoma og hlýnandi veðurSandgerðisbær gefur frí frá hádegi í dagBúist við stormi syðst á landinu í nótt