sudurnes.net
Stefna á öll 18 mánaða börn fái leikskólapláss - Stækka þá leikskóla sem þarf - Local Sudurnes
Reykjanesbær stefnir á að innan þriggja ára verði hægt að bjóða að lágmarki öllum 18 mánaða börnum og eldri upp á leikskólavist í leikskólum bæjarins. Reykjanesbær stefnir þannig á að stækka alla leikskóla í bæjarfélaginu þar sem öll leikskólapláss eru nýtt, til þess að geta boðið 18 mánaða börnum pláss. Þetta kom fram í svari Fræðsluráðs Reykjanesbæjar við fyrirspurn Skóla ehf., sem reka heilsuleikskólann Skógarás, en fyrirtækið óskaði eftir eftir viðræðum og samstarfi við Reykjanesbæ um að stækka leikskólann þannig að mögulegt verði að taka inn yngri börn en nú er gert. Fræðsluráð hefur falið fræðslusviði að eiga í viðræðum við fyrirtækið um mögulegar leiðir til þess að bjóða 18 mánaða börnum leikskólavist. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnStyttist í að eldri borgarar fái niðurgreiddan mat á nýJólaljós tendruð um öll Suðurnes um helginaSöfnun fyrir fjölskyldu Ölmu ÞallarRafrænn frístundastyrkur í VogumÓkeypis ráðgjöf um markaðssetningu handverksPólska sendiráðið býður á tónleikaÓsáttir við samkeppni frá Iceland: “Okkar aðal fjáröflun sem við nýtum í að styrkja góð málefni”Lokaspretturinn: Fjölskyldufjör, partý aldarinnar, bjór og bingóHúllið nýtt nafn á viðburðartorgi