Nýjast á Local Suðurnes

Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja fóru í vel heppnaða námsferð til Finnlands

Tíu starfsmenn Brunavarna Suðurnesja dvöldu í Finnlandi dagana 11.- 16. september, tilgangur ferðarinnar var að kynna sér fræði og verklag vegna eiturefna og eiturefnaslysa.

Finnska ríkið rekur þennan skóla sem staddur er í Kuopio og ber heitið Pelastusopisto en hann er einn sá stærsti af sinni tegund í Evrópu. Á Facebook-síðu Brunavarna Suðurnesja kemur fram að það sé von stjórnenda B.S. að hægt verði að senda fleiri starfsmenn til Finnlands á næstu árum, enda mun kennslan vera einstök.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá dvölinni í Finnlandi, en fleiri myndir er að finna á Facebook-síðu B.S.

bs1

 

bs2

 

bs3

 

bscover