Nýjast á Local Suðurnes

Starfslokasamningur við bæjarstjóra samþykktur – Heildarkostnaður um 13 milljónir

Róbert Ragnarsson mun láta af starfi bæjarstjóra Grindavíkur þan 31. janúar næstkomandi. Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti starfslokasamning við bæjarstjórann á aukafundi sem haldinn var í kvöld. Samningurinn var samþykktur með fjórum atkvæðum meirihluta G og D lista en fulltrúar minnihluta B og S lista sátu hjá við afgreiðsluna.

Áætlaður kostnaður við starfslok Róberts eru 6 milljónir króna sem reiknast á þrjá mánuði með launum og launatengdum gjöldum – Þá er kveðið á um þriggja mánaða biðlaunarétt við lok kjörtímabilsins. Lögmannskostnaður í málinu er tæpar 830.000 kr. Í yfirlýsingu frá meirihluta bæjarstjórnar kemur fram að kostnaður við biðlaun hefði alltaf komið til og sé því ekki reiknaður sem kostnaður við starfslokin.

Fundurinn var haldinn fyrir luktum dyrum vegna trúnaðargagna sem þar voru lögð fram. Bæði meirihluti og minnihluti bæjarstjórnar vilja í kjölfar fundarins senda frá sér neðangreindar yfirlýsingar.

Yfirlýsing meirihluta D- og G-lista

Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur og Róbert Ragnarssonar hafa komist að samkomulagi um starfslok Róberts hjá sveitarfélaginu. Róbert mun sinna störfum sem bæjarstjóri til 31. janúar 2017.

Starf bæjarstjóra verður auglýst innan skamms en samkvæmt samkomulagi um starfslok Róberts sem bæjarstjóra mun hann verða nýjum bæjarstjóra innan handar fyrst um sinn og tryggja þannig að starfslok hans valdi sem minnstri truflun á rekstri bæjarfélagsins.

Róbert hefur gengt starfi bæjarstjóra frá ágúst 2010 og vill meirihluta bæjarstjórnar Grindavíkur þakka Róberti af heilum hug fyrir afar vel unnin störf og gott samstarf.

Áætlaður kostnaður við starfslok Róberts eru 6.000.000 kr sem reiknast á þrjá mánuði með launum og launatengdum gjöldum. Í núverandi ráðningarsamningi er kveðið á um þriggja mánaða biðlaunarétt við lok kjörtímabilsins. Sá kostnaður hefði alltaf komið til við lok ráðningarsamnings Róberts og er hann því ekki reiknaður með við þessi starfslok. Lögmannskostnaður í málinu er tæpar 830.000 kr.

Yfirlýsing minnihluta B- og S lista

Bæjarfulltrúar B- og S- lista harma mjög þau vinnubrögð meirihluta D – og G – lista sem átt hafa sér stað við vinnslu starfslokasamnings Róberts Ragnarssonar bæjarstjóra. Málið var unnið og samningar undirritaðir, bæði við lögfræðing og bæjarstjóra, án þess að nokkur umræða hafi átt sér stað í bæjarstjórn eða bæjarráði.

Róbert var ráðinn við upphaf síðasta kjörtímabils. Þá strax lagðist þáverandi bæjarstjórn í mikla vinnu við endurskipulagningu á stjórnskipulagi og rekstri bæjarins. Gríðarlegur árangur hefur náðst á grunni þeirrar vinnu. Í dag er Grindavíkurbær eitt best rekna sveitarfélag landsins og í öðru sæti á lista Vísbendingar um fyrirmyndar sveitarfélagið. Þessi árangur hefði ekki náðst nema með góðri samvinnu bæjarfulltrúa og starfsfólks Grindavíkur. Róbert gegndi mikilvægu hlutverki í þeirri vinnu og er því leitt að sjá hann hverfa frá störfum á þessum tímapunkti. Fulltrúar B- og S- lista þakka Róberti innilega fyrir samstarf síðustu ára og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.

Fundinn sátu eftirfarandi bæjarfulltrúar:

Kristín María Birgisdóttir, forseti bæjarstjórnar (G)
Hjálmar Hallgrímsson, varaforseti (D)
Guðmundur Pálsson (D)
Jóna Rut Jónsdóttir (D)
Ásrún Kristinsdóttir (B)
Guðmundur Grétar Karlsson (B)
Marta Sigurðardóttir (S)