Nýjast á Local Suðurnes

Starfsfólk á HSS er uggandi um störf sín – “Kerlingarvæl í hjúkkum sem höndla ekki breytingar”

Samskipti starfsfólks Heilbrigðisstofnunnar Suðurnesja við framkvæmdastjórn stofnunarinnar hafa verið lítil sem engin undanfarnar vikur og er starfsfólk uggandi um störf sín og hefur áhyggjur af stöðunni. Þetta kemur fram í greinargerð hjúkrunarfræðings á HSS sem send var Öldungaráði Suðurnesja og lesin upp á aðalfundi félagsins á dögunum.

Í greinargerðinni fer hjúkrunarfræðingurinn yfir samskipti starfsfólks “á gólfinu” við nýjan forstjóra stofnunarinnar, en samskiptin segir hjúkrunarfræðingurinn vera ófagmannleg. Í greinargerðinni kemur meðal annars fram að starfsólk “heyri útundan sér að forstjórinn stimpli þessar aðstæður [á stofnunni (innsk. blm.)] sem kerlingarvæl í hjúkkum sem höndla ekki breytingar.” Þá segir að tveir hjúkrunarfræðingar hafi þegar sagt upp störfum vegna þessa. Suðurnes.net hefur þó heimildir fyrir því að fleiri hafi sagt upp störfum á stofnuninni, eða íhugi alvarlega að gera svo.

Suðurnes.net hefur undanfarið fjallað um ástandið á HSS, en mikil ólga hefur verið á meðal starfsfólks síðan nýr forstjóri tók við rekstri stofnunarinnar. Þannig skrifuðu á annan tug starfsmanna undir vantraustyfirlýsingu á forstjórann. Þá kom stofnunin afar illa út úr vinnumarkaðskönnun Sameykis, en þar lenti stofnunin í 153. sæti af þeim 162 stofnunum sem náðu á lista í könnuninni.

Greinargerðina í heild sinni má sjá hér fyrir neðan en þar segir einnig að verulegur söknuður sé eftir fráfarandi framkvæmdastjóra hjúkrunar, Ingibjörgu Steindórsdóttur, en hún sagði upp vegna samskiptaörðuleika við umræddan forstjóra.

Greinargerðin í heild sinni:

Staðan á HSS í dag er erfið. Stofnunin er eins og þið öll hafið heyrt, verið fjársvelt til fjölda ára. Auk þess er húsnæði löngu sprungið, hjúkrunarfræðingar hafa verið fáliðaðir en þó fer læknum fjölgandi og ber því að fagna. Við fáum meðaumkun og samhygð í orðum sem sýna sig aldrei í verki. Taka skal fram að HSS fær raunlækkun í fjárlögum árið 2020 sem sýnir engan veginn þann einhug í umræðunni um að styrkja hag stofnunarinnar. Bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra Reykjanesbæjar hafa sett mikla vinnu í gang við að sýna fram á óréttlæti í fjárlögum til HSS eins og til fleiri stofnanna á Suðurnesjum. Þetta ágæta fólk hefur hitt ráðherra, þingmenn og alla þá áhrifavalda sem hafa einhverja aðkomu að málinu með næstum engum árangri. Nýleg forstjóraskipti HSS var beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Núverandi forstjóra var mætt af starfsfólki með bjartsýni og tilhlökkun til bjartari tíma. Nú hefur þó komið í ljós að jú breytingar eru í vændum en hvaða breytingar? Forstjórinn hefur tekið ákvörðun um að loka skurðstofum HSS sem er skiljanleg ákvörðun með tilliti til aldurs búnaðar á deildinni og minnkandi verkefna.

Það sem þó setur ugg í starfsfólk eru sögusagnir um lokun fæðingardeildar og lokun á hvíldar- og endurhæfingarplássi á stofnuninni. Það ásamt að því virðist herferð að draga úr hjúkrunarstjórnun á heilbrigðisstofnun sem stýrir um það bil 100 hjúkrunarfræðingum, veldur áhyggjum. Verulegur söknuður er eftir fráfarandi framkvæmdastjóra hjúkrunar, Ingibjörgu Steindórsdóttur, en hún sagði upp vegna samskiptaörðuleika við umræddan forstjóra. Ingibjörg hefur barist ötullega fyrir HSS síðan árið 1996. Samskipti starfsfólks sem starfar á gólfinu við framkvæmdastjórn hafa verið engin undanfarnar vikur, starfsfólk er uggandi um störf sín og hefur áhyggjur af stöðunni.

Það að heyra á göngum stofnunarinnar að loka eigi deildum er ófagmannlegt. Það að draga úr mikilvægi hjúkrunar við stofnunina er verulegt áhyggjuefni. Það að heyra útundan sér að forstjórinn stimpli þessar aðstæður sem kerlingarvæl í hjúkkum sem höndla ekki breytingar er ófagmannlegt og hrein lygi. Að mati okkar starfsfólks á Slysa- og bráðamóttöku HSS höfum við verulegar áhyggjur af stöðunni sem er uppkomin á vinnustaðnum okkar sem var erfiður fyrir. Nú þegar hafa tveir hjúkrunarfræðingar sagt upp störfum við deildina og margir eru að hugsa sinn gang. Það hefur nefnilega áhrif hvernig maður stýrir og hvaða afleiðingar það hefur.