sudurnes.net
Starfsemi Myllubakkaskóla flutt á fjóra staði - Local Sudurnes
Starfsemi Myllubakkaskóla verður flutt á fjóra staði í nálægð við skólann, en um tímabundið úrræði er að ræða á meðan unnið er á úttekt á húsnæði hans. Mygla fannst í skólanum í síðasta mánuði. Nemendur í 1. og 2. bekk verða hýstir í færanlegum kennslustofum sem eru þegar á lóð Myllubakkaskóla. Hægt verður að nýta lóða skólans um umhverfi sem þeir eru vanir áfram. Nemendur í 3. og 4. bekk fara í gamla barnaskólann við Skólaveg, fimmtu og sjöttu bekkingar verða á hæðinni fyrir ofan Bónus í gamla Félagsbíó nærri ráðhúsinu og unglingadeildinni verður komið tímabundið fyrir í Íþróttaakademíunni og Reykjaneshöll. Meira frá SuðurnesjumKeflavík heimsækir Íslandsmeistarana í bikarnumMargrét efst hjá SjálfstæðisflokkiStækka bráðabirgðaskóla í Innri-NjarðvíkBrynjar Atli og Ísak Óli léku með U17 landsliðinu í sigurleik gegn FæreyjumEitt tilboð barst í verkefni upp á milljarðMars 1 og 2 komnir í útboðHissa á af­skipt­um lög­reglu en skellt í varðhaldSameinað lið Keflavíkur og Njarðvíkur leikur til úrslita í bikarnumBygging leikskóla í útboðLangmest aukning gistinátta á hótelum á Suðurnesjum