sudurnes.net
Standa við kröfu um verkfræðilega úttekt - Eftirlit með verksmiðjunni fordæmalaust - Local Sudurnes
Umhverfisstofnun fellst ekki á þá ósk Sameinaðs Sílikons hf. að fyrirtækið fái sex mánuða frest til að bæta úr frávikum. Mikilvægt sé að nú þegar verði í varúðarskyni stigin markviss skref til að ná betri tökum á rekstri verksmiðju Sameinaðs Sílikons hf. hvað varðar mengunarvarnir. Í svarbréfi Sameinaðs Sílikons til Umhverfissstofnunar 7. mars sl., eftir að stofnunin hafði áformaðað fram skyldi fara verkfræðileg úttekt í kjölfar ítrekaðra frávika m.a. varðandi reykhreinsun og ólykt þar sem 300 kvartanir hafa borist frá íbúum á þeim fjórum mánuðum sem verksmiðja hefur verið starfrækt, er velt upp spurningum um jafnræði við ákvarðanatöku. Boðaðar aðgerðir Umhverfisstofnunar um óháða verkfræðilega úttekt og takmörkun á starfsemi verksmiðjunnar að óbreyttu, eru í svarbréfi Sameinaðs Silíkons taldar óþarflega íþyngjandi fyrir fyrirtækið. Á það fellst Umhverfisstofnun ekki. „Vill stofnunin [Umhverfisstofnun] benda á að fram hefur komið að vegna umfangsmikilla og endurtekinna rekstrarvandamála sé umfang eftirlits með verksmiðjunni fordæmalaust. Þá hefur rekstur verksmiðjunnar sérstöðu hvað varðar eðli, umfang framleiðslu og nálægð við íbúabyggð,“ segir í bréfi Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun telur jákvætt að rekstraraðili vinni að því að greina vandamál í rekstri verksmiðjunnar og setji fram úrbótatillögur bæði með samstarfi við framleiðanda mengunarvarnabúnaðar og með öðrum utanaðkomandi sérfræðingum. Stofnunin óskar eftir að fá allar upplýsingar er út úr þeirri greiningarvinnu munu koma um leið og þær [...]