sudurnes.net
Stálu verkjalyfjum og rótuðu í vistarverum skipverja - Local Sudurnes
Brotist var inn í bát í Grindavíkurhöfn í vikunni og lyfjum stolið. Rúða stjórnborðsmegin hafði verið brotin með slaghamri og fleiri tólum og sá eða þeir sem þar voru að verki komist inn með þeim hætti. Úr lyfjaskáp bátsins hafði verið tekið eitthvert magn af verkjalyfjum og einnig var farið inn í klefa skipverja og rótað þar til. Ekki er ljóst hvort einhverju fleiru en verkjalyfjunum var stolið en lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnÓopnuðum jólapökkum stolið í innbrotiBeruð kynfæri og offita er á meðal efnis í föstudagspistli Árna ÁrnaAldursforsetar endursemja við NjarðvíkBrotist inn bát í SandgerðishöfnDýrum tækjum stolið í innbrotiBrotist inn í geymslur í ReykjanesbæTölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið – Lögregla leitar upplýsingaBjörguðu erlendum ræðara í leiðindabræluKöstuðu flugeldum inn um bréfalúgu – Snarræði íbúa kom í veg fyrir slys