Nýjast á Local Suðurnes

Stálu sjónvarpi úr verslun og hentu því í ruslið

Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum eftir að tveir menn höfðu stolið sjónvarpi úr verslun í Njarðvík. Þegar lögreglumenn komu á staðinn hafði starfsfólk verslunarinnar fundið sjónvarpið við ruslagám í nágrenni hennar.

Þá var tilkynnt var um þjófnað úr nýbyggingu þar sem stolið hafði verið höggborvél, heftibyssu og hamri.